Húsfreyja á Húsavík og Seltjarnarnesi. Var í Kirkjulandi, Vestmannaeyjum 1930. Síðast bús. á Seltjarnarnesi.
Birna Guðný Björnsdóttir fæddist 9. maí 1922 á Kirkjulandi í Vestmannaeyjum. Hún lést á Landakotsspítala þriðjudaginn 5. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Björn Þórarinn Finnbogason, útvegsbóndi frá Kirkjulandi, Vestmannaeyjum, og Lára Kristín Guðjónsdóttir. Börn þeirra hjóna voru: Ólafur Rósant húsgagnasmiður, f. 5.11. 1910, d. 1.11. 1969, Steingrímur Örn, f. 1.2. 1913, d. 17.9. 1983, skipstjóri; Þórunn Alda, f. 20.4. 1915, húsmóðir; Ágúst Kristján, f. 4.11. 1916, d. 27.8. 1979, útgerðarmaður og síðar lagerstjóri hjá Kassagerðinni; Hlöver Björnsson f. 30.3. 1919, d. 7.5. 1919.
Birna giftist 13.8. 1943 Vernharði Bjarnasyni frá Húsavík, f. 16.6. 1917, d. 1.3. 2001. Foreldrar hans voru hjónin Bjarni Benediktsson kaupmaður og útgerðarmaður, síðar póstafgreiðslumaður á Húsavík og Þórdís Ásgeirsdóttir frá Knarrarnesi í Mýrasýslu.
Börn Birnu og Vernharðs eru Bergur, eiginkona hans er Margrét Birna Sigurðardóttir; Soffía; Bjarni Jóhann; Björn Óskar, eiginkona hans er Torfhildur Stefánsdóttir; Alda Ólöf. Barnabörn þeirra eru 13 talsins og barnabarnabörnin 4.
Birna og Vernharður bjuggu á Húsavík árin 1944-1967. Frá 1967 voru þau búsett á Seltjarnarnesi, síðast á Skólabraut 5.
Have you taken a DNA test? If so, login to add it. If not, see our friends at Ancestry DNA.
Birna is 27 degrees from Emeril Lagasse, 23 degrees from Nigella Lawson, 29 degrees from Maggie Beer, 52 degrees from Mary Hunnings, 36 degrees from Joop Braakhekke, 37 degrees from Michael Chow, 33 degrees from Ree Drummond, 29 degrees from Paul Hollywood, 28 degrees from Matty Matheson, 33 degrees from Martha Stewart, 39 degrees from Danny Trejo and 38 degrees from Molly Yeh on our single family tree. Login to find your connection.
B > Björnsdóttir > Birna Guðný Björnsdóttir